Jólahlaðborð 2026

Þegar aðventan gengur í garð breytist Skíðaskálinn í sannkallaða jólaveröld. Við bjóðum þig og þína hjartanlega velkomin í okkar vinsæla jólahlaðborð í einstöku umhverfi Hveradala.
Jólastemningin, góður matur, lifandi tónlist og fallega skreytt hús skapa ógleymanlegt kvöld fyrir fjölskyldur, vinahópa og fyrirtæki.
Jólahlaðborðið verður haldið alla föstudaga og laugardaga frá 13. nóv. til 12. des.
Sunnudagarnir 13. og 20. desember verða fjölskyldudagar, þar sem jólasveinninn kemur í heimsókn og gleður yngstu gestina.
Maturinn
Matarkompaní töfrar fram matinn af sinni alkunnu snilld og sér til þess að gestir fái notið klassískra jólarétta í bland við hátíðlega og bragðmikla rétti.
Verðskrá
Jólastemning í hverju horni
Skreytingþjónustan sér um að breyta húsinu í sannkallaða jólaveröld.
Húsið verður fallega skreytt og stemningin verður hlý, hátíðleg og einstök — eins og Skíðaskálanum einum er lagið.
Rútuferðir
Trex sér um rútuferðir frá höfuðborgarsvæðinu.
Við erum í samstarfi við Trex og þeir sækja hópa heim að dyrum, athugið þó að ekki er keyrt að heimahúsum.
Verðskrá rútuferða
- 20 manna rúta 105þús (með einu stoppi)
- 40-50 manna rúta 115 þús (með einu stoppi)
- Við útvegum einnig rútur frá Selfossi og Þorlákshöfn. Verð er gefið eftir tilboði.
Lifandi tónlist og ógleymanleg stemning
Benni Sig spilar létta tónlist yfir matnum og þegar líður á kvöldið gengur hann á milli sala og borða, tekur lagið með gestum og keyrir upp sannkallaða jólastemningu með hópsöng.
Það er enginn betri en Benni þegar kemur að því að skapa góða stemningu, gleði og eftirminnilegt kvöld.
Verið hjartanlega velkomin á JólahlaðborðSkíðaskálans 2026
Komdu og njóttu aðventunnar í fallegu umhverfi, með góðum mat, tónlist, hlýju og alvöru jólastemningu í Skíðaskálanum.

